sollitas

Tuesday, May 30, 2006

Jæja þá hefur mín ákveðið að starta bloggi ykkur til mikills yndisauka! ...
;)

Af mér er allt svo gott að frétta var að hefja mitt fimmta sumar í OR, jesús held maður sé nú alveg klikk! En þau voru svo næs að veita mér vinnu frá 8-14 og það var ekki úr miklu að velja. En dagurinn líður fljótt og ég er með eina af okkur ex-austangellum hana Svanhildi mér við hlið veit ekki hvað ég gerði ef hún væri ekki þarna því maður er orðinn soldið gamall! ....jamm þetta eru soldið ungir krakkar ja eða það að maður er orðinn gamall og jafnvel bara kannski fullorðinn ! heh nei ég er bara stelpa, ég og ragga segjumst bara vera litla stelpur sem eiga börn ! :) Erum við það ekki??....og by the way, það vantar allt aðalliðið, nefni engin nöfn, en menn sem týna gleraugum, mr penis, gula massabolinn, "hommana", stunubókmenntirnar og marga fleiri áhugaverða karaktera!!

Steindór minn er alltaf sama yndið og bara orðinn svo stór strákur. Æði alltaf að læra e-ð nýtt og ég er sko ekkert með neitt ungabarn mér við hlið, nei bara minn besta félaga;) Það er hægt að spjalla svo við hann og gera svo margt skemmtilegt með honum og ég er að deyja ég hlakka svo til sumarins með ástinni minni:)

Skólinn búinn og svona og allt að týnast inn. Fjórar einkunnir af sex komnar og þetta er bara nokkuð góð frammistaða miðað við tímann sem tekinn var í að læra, eiginlega bara rosalega gott ef litið er á aðstæður ;) Fínt að fá frí frá skólanum þó það sé svo gaman þar...

Ég og Steindór vorum svo að koma frá Þýskalandi þar sem við dvöldum í góðu yfirlæti hjá Arnari og var það rosa fínt. Litli maðurinn naut sín vel og þeir voru flottir saman, vorum hálfúl að fara heim. En það er saga að segja frá því að maður skellti sér á djammið í Bonn!!! Ætlaði sko ekkert að fara, þekkti engan, arnar var ekki einu sinni búinn að kynna mig fyrir fólkinu sem ég var að fara að hitta!!!...leið eins og asna...hehe og svo er ég ekki sú sleipasta í ensku!!...Þorði ekki annað en að drekka tvo bjóra áður en haldið var af stað, var soldið óþæginlegt en skánaði þegar drykkjunum fjölgaði, en var alveg gaman en ég reyndar var svo mikil ljóska að ég lét ljótasta gaurinn á svæðinu plata mig á annan bar og var ekkert að fatta að hann var með e-ð allt annað í huga en ég ! Svo ég sat uppi með hann allt djammið og hann sagði hina farna heim að sofa, en ég vildi nýta djammið mitt og fór ekki heim heldur hélt áfram að djamma alveg í bakkgírnum því gaurinn annsi ágengur og fór meira að segja í fýlu þegar ég var að tala við aðra gaura, rauk út í horn í eitt skiptið ég hef aldrei vitað annað eins hahaha, mjög fyndið eftirá að hyggja!!...En fór svo heim til "strákanna" minna og þeir vildi ekki vakna lá á bjöllunni eins og eitt kvöldið hjá Röggu forðum humm..., klifraði yfir risagrindverk og kastaði mörg hundruð evrum í gluggann og hékk svo aftur á bjöllunni og loks komst ég inn! ...haha fólk sefur misjafnlega fast!

Bara æðislegt veður úti, held það verði sko pollagallinn á morgunn og húfa og vettlingar á ekki að fara að koma sumar!! ????

en nóg í bili

ciao
Sollita